VERKSVIÐ OG VINNUFERLI:
Einkenni hönnunar minnar eru einfaldleiki og tímaleysi.
Ég er fagmenntuð sem innanhússarkitekt með sérhæfingu sem byggir á menntun, reynslu og hæfni á sviði innanhússhönnunar. Markmið mitt er að örva upplifun fólks á hönnun rýmiss og innviðum þess þar sem samband ríkir á milli skipulags og innra fyrirkomulags, notagildis, efnisáferða og lita.
Lagðar eru fram tillögur að ákveðnu verki. Þegar fyrstu hugmyndir hafa verið samþykktar af verkkaupa, hefst vinna við aðalteikningar. Því næst eru gerðar sérteikningar og verklýsingar. Lokaþátturinn er svo umsjón með verkinu.
Meginverkefni mín er heildar innanhússhönnun á heimilum, opinberum stofnunum svo sem skrifstofuhúsnæðum, veitingastöðum ofl, auk hönnunar á smærri rýmum, innréttingahönnun, lýsingarhönnun og almenn ráðgjöf sem tengist innanhússkipulagi, húsgagna-, efnis, lýsingar og litavali.